Hjólabátaferðir

Meira en 35 ára reynsla

Lengd: 30-40 mín
Tímabil: Maí-Nóv

Við bjóðum upp á skemmtilegar bátsferðir um lónið á einum af fjórum hjólabátunum okkar. Í ferðinni er siglt milli stórfenglegra ísjaka í mögnuðu landslagi Jökulsárlóns. Um borð í bátnum fá farþega að smakka 1000 ára gamlan ís beint úr Breiðamerkurjökli. Ef heppnin er með ykkur gætuð þið jafnvel séð seli. Ferðin tekur 30-40 mínútur með enskumælandi leiðsögumanni sem útskýrir fyrir ykkur jarðfræði og staðreyndir um lónið. Önnur tunugmál eru mögulega í boði ef þess er óskað.

Áætlun

Við förum um 40 ferðir á dag á háannatíma (1.júlí – 31. Ágúst). Utan háannatíma eru ferðirnar líka nokkuð tíðar. Athugið að síðasta hjólabátaferðin leggur af stað um klukkustund fyrir lokun. Endilega skoðið frekari upplýsingar og framboð á bókunar síðunni hjá okkur. Við mælum með að miðar séu keyptir fyrir fram.