ZODIAC FERÐIR

Upplifðu einstaka fegurð á Jökulsárlóni

ZODIAC FERÐIR

Á Zodiac bátunum ( RIB gúmmibátar) komumst við yfir stórt svæði á Jökulsárlón og komust nær ísjökunum en við getum á hjólabátunum.

Við förum nánast alla leið upp að Jöklinum ef aðstæður leyfa (Eins nálægt og öruggt er). Zodiac ferðin tekur um 1 klukkustund, mæta þarf 30 mínútum fyrir brottför til að fara í flotgalla.

Þú munt upplifa einstaka fegurð Jökulsárlón í mikilli nánd við lónið. Ferðin er á persónulegu nótunum þar sem okkar frábæru skipstjórar spjalla við ykkur og útskýra leyndardóma Jökulsárlóns.

Ferðin er útsýnisferð þrátt fyrir að bátarnir fari hratt hluta ferðarinnar. Aldurstakmark í Zodiac ferðirnar er 10 ára börn þurfa að hafa náð 130 cm hæð að lágmarki.

BÓKANIR