HJÓLABÁTAFERÐIR

ÓGLEYMANLEG BÁTSFERÐ

HJÓLABÁTAFERÐIR

Við bjóðum upp á skemmtilegar bátsferðir um Jökulsárlón á einum af fjórum hjólabátunum okkar. Meðan á skoðunarferðinni stendur er siglt á milli risavaxinna ísjaka í fallegu landslagi, Hjólabáturinn er tilvalin ferð fyrir alla fjölskylduna óháð aldri. Ef heppnin er með ykkur, gætuð þið séð seli

Um borð í bátnum er leiðsögumaður sem segir frá sögu Jökulsárlóns, hvernig lónið varð til og ýmsar tölulegar staðreyndir um lónið.
Ferðin tekur 30 – 40 mínútur og þurfa gestir sem eiga nú þegar bókað að innrita sig í miðasölunni um 20 mínútum fyrir brottför. Mæta þarf við bátinn 5 mínútum fyrir brottför. Gestir fá björgunarvesti um borð í bátnum en ekki annan hlífðarfatnað. Bátarnir eru opnir og því er mikilvægt að klæða sig eftir veðri.

Ferðin er róleg og hentar því öllum aldri og eru engin aldurstakmörk í hjólabátferðinni.

BÓKANIR